۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

þriðjudagur, maí 23, 2006

Varna

Sjáðiði vörubílstjóran!
Mætti til Varna í gær, skilaði bílaleigubílnum, tjékkaði mig inn á hótelið sem ég pantaði á netinu og það er svona glimrandi fínt. Ég hljóp svo niðrá strönd, sem er kannski ekki hreinasta strönd sem ég hef séð, og bara umhverfið sem ég hef komið í, en þetta er fínt. Ég sprangaði um á túttunum allan daginn og er alveg helaumur í öxlunum í dag. Hér á myndinni má sjá nýju vörubílstjórabrúnkuna mína ásamt nýju bjórvömbinni minni.

Þetta ferðalag styttist óðum og bara tveir dagar eftir. Ég get notað tíman á meðan ég er að jafna mig í öxlunum eftir sólina í gær til að labba um Varna. Ég fór nú samt aðeins á ströndina í dag, var bara í bol. Eignaðist rosa fínan vin þar. Það var hundur sem elti mig út um allt og lét mig kasta trjágrein ítrekað út í sjóinn og svo synti hann hundasundið sitt á eftir henni. Ég á eftir að sakna hans.

sunnudagur, maí 21, 2006

Vörubílstjórabrúnka

Bíllinn minn blái
Ég lagði af stað á bílaleigubílnum, sem er af gerðinni Opel Corsa, frá Sofia í gærmorgun. Það gekk svona þokkalega að keyra í Sofiu en ég þurfi samt að taka nokkra auka hringi í miðbænum til að finna leiðina út. Bílstjórarnir hérna eru vægast sagt nett taugaveiklaðir og farnir að flauta þegar nokkrar sekúndur eru í að það komi grænt. Ég var því búinn að setja mér það markmið að láta ekki flauta á mig. Það gekk ekki alveg eftir og ég taldi fjögur flaut á þeim tíma sem ég var að keyra í Sofiu, akkurat út af engu.

Svo þegar ég var kominn út á þjóðveg þá gleymdi ég mér eitt skiptið á vinstri akreininni og var eitthvað að dóla mér þar á 100 kílómetra hraða þegar ég sé að það er svartur Audi fyrir aftan mig að blikka ljósunum á fullu. Ég renndi mér þá yfir á hægri og Audi fór fram úr mér og fór fyrir framan mig og hægði á sér niður í 60 km hraða. Hann var sem sagt að hefna sín en ég hló bara, fannst þetta frekar sniðugt og var ekkert að flýta mér. Hann brunaði svo í burtu þegar hann sá mig hlæja, held ég, eitthvað aðeins pirraður á túristanum, hehe.

Ég stoppaði nokkrum sinnum á leiðinni og tók myndir og fékk mér kaffi og svona og fór nokkrum sinnum út af þjóðveginum og keyrði um krummaskuð og skoðaði sveitabæi. Ég keyrði náttúrulega með opinn gluggan því það var alveg svakalega gott veður og með vinstri hendina í glugganum, svona eins og töffari skiljiði. Ég er því núna með eina mjög brúna hendi og aðra hvíta eða eins og ég kýs að kalla það vörubílstjórabrúnku. Ég verða að fá mér hlírabol áður en ég legg af stað á morgun svo ég fái líka smá lit á vinstri öxlina;)

Þegar ég kom til Sevlievo var tekið á móti mér eins og heimamanni og ég tjékkaði mig inn á hótelið en fór svo út í skoðunarferð. Ég hafði alltaf ætlaði mér að skoða gamla bæinn hérna sem er lengst upp í fjalli og það gerði ég í gær í steikjandi sól og um 30 stiga hita. Það var rosalega gaman að sjá þetta þó að ég hafi reyndar verið meira upptekin af því að horfa í jörðina heldur en á mannvirkin. Það var vegna þess að það var mikið um hátt gras og skógur sem ég þurfti að labba í gegnum og því mjög mikið af eðlum og snákum út um allt. Ég var skíthræddur og var eitthvað svo berskjaldaður í kvartbuxum og hálfgerðum sandölum en ég er viss um að það hefði verið gaman að vera fluga á vegg að fylgjast með æfingunum hjá mér þegar ég stökk til og frá við minnsta hjóð.

Í gærkvöldi hitti ég svo félaganna hér og vaknaði klukkan hálf tíu í morgun fór á netið og svo í sólina. Var að átta mig á því að ég er ekkert orðinn brúnn, nema á vinstri hendi, og það eru bara fjórir dagar eftir.

föstudagur, maí 19, 2006

Ehem...


Eg set eitthvad gafulegt herna inn a morgun. Er a faraldsfaeti og buinn ad selja fartolvuna mina. Seldi hana a svartamarkadinn herna og kaupi glaenyja tolvu a morgun. Alla vega er staddur i Sofia, kom hingad i gaer. Buinn ad taka mer bilaleigubil og legg af stad a morgun til Sevlievo, verd tar i fram a manudag og fer svo til Varna, myndin er tadan.

miðvikudagur, maí 03, 2006

Nýjast í fréttum

Fór í dýragarð um helgina sem var rosalega gaman. Sá þar í fyrsta skipti með eigin augum allskonar dýr eins og apa, ljón, birni og fleira. Ég gat þó ekki annað en vorkennt þessum greyjum sem híma í búrum alla daga og nýtt fólk kemur á hverri mínútu og gónir á þau og potar í þau.

Fór í klippingu í gær. Það gekk ágætlega fyrir utan það að klippikonan skildi ekki ensku. Ég var að reyna að útsýra fyrir henni að taka bara lítið af hárinu. En þar sem að ég kann bara að segja lítið (malko) og engar aðrar beygingarmyndir þess orðs túlkaði hún það þannig að ég vildi lítið hár. Þegar ég sá hvað hún tók mikið var það of seint. Ég er því núna eins og búlgarskur hermaður á eftirlaunum.

Og nú koma sláandi fréttir. Þeir sem eru viðkvæmir eru vinsamlegast beðnir um að hætta að lesa núna. Ég fór á lögreglustöðina í gær til þess að skrá mig vegna þess að ég er ekki á hóteli. Þá kom það í ljós að ég get ekki yfirgefið landið fyrr en eftir fjóra mánuði! Vegna þess að ég er búinn að vera svo lengi þarf ég dvalarleyfi og þegar ég fæ það verð ég að vera allavega í sex mánuði, þannig að ég kem ekki heim fyrr en í ágúst.

Þetta var að sjálfsögðu bara grín en ég vona að einhver hafi keypt þetta. Ferðin á lögreglustöðina fór þannig að mér var sagt að ég gæti bara verið í Búlgaríu í 90 daga. Ég vissi það svo sem en ég skildi reglugerðina þannig þegar ég las hana að þessir 90 daga myndu endurnýjast ef ég færi út úr landinu og hefði því endurnýjast þegar ég fór til Brussel. Það er hins vegar ekki þannig og ef að ég ætla að vera lengur þarf ég að sækja um D-atvinnu dvalarleyfi. Það virkar þannig að það tekur 30 virka daga að fara í gegnum hið hæga skrifstofuveldi Búlgaríu og ef ég fæ dvalarleyfið þarf ég að vera í Búlgaríu í 6 mánuði og einn dag að minnsta kosti. Þetta þýðir að ég fer heim u.þ.b. tíu dögum fyrr en ég ætlaði mér, nánar tiltekið þann 24. maí. Ég er ekkert rosalega ánægður með það að þurfa stytta dvölina en una sáttur. Ég veit líka að það er ein ung kona á Íslandi er hamingjusöm með það að ég komi fyrr heim;) og það er ég líka þegar ég hugsa til þess að það er styttra þangað til að við hittumst:)

Chao chao

mánudagur, maí 01, 2006

Brennivín er fyrir kettlinga!

Það var frekar leiðinlegt að þurfa að pakka saman og yfirgefa litla bæinn Sevlievo á föstudaginn. Ég hafði kynnst fullt af fólki þar og var farinn að hitta tvo, þrjá kunningja í hvert skipti sem að ég fór út úr húsi. Ég var þó leystur út með gjöfum á Youth centerinu og fékk t.d. þrjá geisladiska með búlgarskri tónlist, boli merkta youth centerinu, lítin Rakia bolla og flösku af heimabrugguðu Rakia, sem er þjóðardrykkur búlgara. Ég eignaðist marga mjög góða vini í Sevlievo og við hittumst nánast á hverju einasta kvöldi, síðustu tvær, þrjár vikurnar hittumst við á hverju kvöldi. Brottför mín var þó óhjákvæmileg og síðasta kvöldið var kvatt með trega og tárum.

Ferðin á nýja staðinn gekk ágætlega, þótt ég hafi bætt heldur miklu í farangurinn þessa tvo mánuði sem ég hef verið hérna, sé fram á að þurfa senda eitthvað af þessu á undan mér heim. Ég hitti Milenu, tengilið minn, í Sofiu og hún sagði mér hvernig framhaldið yrði. Á rútustöðina kom svo kona að hitta okkur sem vinnur í höfuðstöðvum sveitafélaga Búlgaríu. Hún fór með mér í rútunni til Blagoevgrad en þar sem hún skilur ekki bofs í ensku var þetta þögul ferð. Hún fór með mig til móðir sinnar þegar við komum til Blagoevgrad þar sem ég mun dvelja í mánuð. Það var búið að segja mér að ég yrði á háskólagörðunum en það var víst allt fullt þar þannig að nú bý ég við sömu aðstæður og hin búlgarski meðaljón, sem mér þykir mjög spennandi.

Aðstæðurnar eru nákvæmlega eins og ég ímyndaði mér. Ég hef alltaf haft ákveðna mynd í huganum af heimilum í fyrrverandi kommúnistaríkjum og sú mynd er nákvæmlega eins og raun ber vitni hér. Húsið er kynnt með kamínu, þegar það er kynnt á veturnar, og veggirnir bera vitni þess. Það er hins vegar ekki kynnt núna og því rakadaunn í húsinu. Loftið er sótsvart og veggirnir, sem klæddir eru svona ljósbrúnu pappa veggfóðri með mynstrum, bera brúna rakabletti hér og þar. Fyrsta nóttin var frekar svöl og ég vaknaði nokkrum sinnum til þess að bæta á mig klæðum en þrátt fyrir það ég er mjög hamingjusamur með þetta.

Þegar ég kom á föstudaginn gistu hérna tvær stelpur líka sem voru hér að taka inntökupróf í annan háskólan hér. Þær töluðu ágæta ensku og við fórum í skoðunarferð um borgina um kvöldið. Á laugardaginn fékk ég svo í fyrsta skipti heimatilbúinn búlgarskan hádegisverð sem samanstóð af baunagraut (bobchurba), einhverskonar kjötbollumixi (kebapche), salati og Rakia (með hádegismatnum takið eftir). Rakia er eins og áður sagði þjóðardrykkur búlgara og flest heimili brugga svoleiðis sjálf. Ég varð náttúrulega að smakka en ég hafði þangað til ekki enn náð að mana mig upp í það því að ég hafði fundið lyktina af honum. Það Rakia sem var í boði var heimabruggað, að sjáfsögðu, og um það bil 60% í styrkleika. Ég dró náttúrulega upp íslenska Brennivínið mitt og leyfði þeim að smakka og sagði stoltur frá því að þetta væri alíslenskur drykkur. Gamla konan gaf nú ekki mikið fyrir þennan drykk sem við íslendingar teljum vera aðeins fyrir þá hörðustu og sagði að þetta væri bara drykkur fyrir kettlinga, enda BARA 37.5%. Ég rétt náði að klára Rakia staupið mitt með matnum en þrisvar lá við að maturinn sem niður var kominn kæmi allur upp sömu leið. Rakia er bara drukkið óblandað og þegar ég drakk þetta fann ég hvernig það hitaði upp leiðina sem það rann og hvernig lifrin skalf þegar þessi óvænti hádegisgestur renndi sér í á vit hennar.

Klukkan tíu á morgun mun ég hitta nýja yfirmann minn á skrifstofu sveitafélagsins Blagoevgrad. Ég mun vinna þar í deild Evrópusamrunans (department of European integration) og var mér var sagt að þar fengi ég bitastæðari verkefni en á youth centerinu, og því fagna ég, þó að það hefði verið betra að byrja á því þar sem að ég ætlaði að reyna að taka prófin í þeim áföngum sem ég er í H.Í. hérna úti. En ef það gengur ekki verð ég bara að harka það af mér að taka þau í sumar.

Þessi borg er rosalega falleg með risastóran miðbæ sem eru aðeins göngugötur, veitingastaðir, verslanir, háskólar, gosbrunnar og allt tilheyrandi sem fylgir fallegum miðbæ. Ekki skemmir heldur fyrir að það er á sem rennur í gegnum miðbæinn með brúm, veitingastöðum og almenningsgörðum allt í kring.

Ég hef ákveðið að reyna að taka mér nokkra daga eftir að vinnunni lýkur þann 26. maí í að ferðast um Búlgaríu. Planið er að taka bílaleigubíl og keyra niður að ströndinni og skoða fullt af mannvirkjum þar sem að mér er sagt að séu stórkostleg. Svo mun ég taka aðra leið heim og því keyra smá hring í kringum Búlgaríu. Á leiðinni til baka til Sofiu mun ég svo stoppa í Sevlievo og heimsækja vini mína þar. Þetta er þó enn bara hugmynd hjá mér en ég ætla að fara að skipuleggja þetta nánar í vikunni.

Kveðja frá Búlgaríu
Chao, chao.

--------------------------------------------------