miðvikudagur, maí 03, 2006
Nýjast í fréttum
Fór í dýragarð um helgina sem var rosalega gaman. Sá þar í fyrsta skipti með eigin augum allskonar dýr eins og apa, ljón, birni og fleira. Ég gat þó ekki annað en vorkennt þessum greyjum sem híma í búrum alla daga og nýtt fólk kemur á hverri mínútu og gónir á þau og potar í þau.Fór í klippingu í gær. Það gekk ágætlega fyrir utan það að klippikonan skildi ekki ensku. Ég var að reyna að útsýra fyrir henni að taka bara lítið af hárinu. En þar sem að ég kann bara að segja lítið (malko) og engar aðrar beygingarmyndir þess orðs túlkaði hún það þannig að ég vildi lítið hár. Þegar ég sá hvað hún tók mikið var það of seint. Ég er því núna eins og búlgarskur hermaður á eftirlaunum.
Og nú koma sláandi fréttir. Þeir sem eru viðkvæmir eru vinsamlegast beðnir um að hætta að lesa núna. Ég fór á lögreglustöðina í gær til þess að skrá mig vegna þess að ég er ekki á hóteli. Þá kom það í ljós að ég get ekki yfirgefið landið fyrr en eftir fjóra mánuði! Vegna þess að ég er búinn að vera svo lengi þarf ég dvalarleyfi og þegar ég fæ það verð ég að vera allavega í sex mánuði, þannig að ég kem ekki heim fyrr en í ágúst.
Þetta var að sjálfsögðu bara grín en ég vona að einhver hafi keypt þetta. Ferðin á lögreglustöðina fór þannig að mér var sagt að ég gæti bara verið í Búlgaríu í 90 daga. Ég vissi það svo sem en ég skildi reglugerðina þannig þegar ég las hana að þessir 90 daga myndu endurnýjast ef ég færi út úr landinu og hefði því endurnýjast þegar ég fór til Brussel. Það er hins vegar ekki þannig og ef að ég ætla að vera lengur þarf ég að sækja um D-atvinnu dvalarleyfi. Það virkar þannig að það tekur 30 virka daga að fara í gegnum hið hæga skrifstofuveldi Búlgaríu og ef ég fæ dvalarleyfið þarf ég að vera í Búlgaríu í 6 mánuði og einn dag að minnsta kosti. Þetta þýðir að ég fer heim u.þ.b. tíu dögum fyrr en ég ætlaði mér, nánar tiltekið þann 24. maí. Ég er ekkert rosalega ánægður með það að þurfa stytta dvölina en una sáttur. Ég veit líka að það er ein ung kona á Íslandi er hamingjusöm með það að ég komi fyrr heim;) og það er ég líka þegar ég hugsa til þess að það er styttra þangað til að við hittumst:)
Chao chao

