۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

laugardagur, júlí 08, 2006

Þessa dagana...

Liðið fyrir síðasta leik
Er svolítið mikið að gera og hefur raunar verið síðan ég kom heim. Byrja að vinna, hitta félagana og í fótboltanum. Þá bauð ég mig einnig fram í stöðu Alþjóðafulltrúa Politicu, sem er nemendafélag stjórnmálafræðinema, þegar ég var í Búlgaríu og hlaut rússneska kosningu í það embætti. Ég er rétt að taka við því þessa dagana en auk þess er ég varaformaður/ritstjóri meistaraflokks Hamars í knattspyrnu og svo á ég líka eina litla konu sem fær allt of lítinn tíma. Ég skrifa inn á "heimasíðu" Hamars, sem ég bjó til, og skrifa svo pistla í "Naglann", sem er blaðlingur sem við gefum út í Hveragerði fyrir hvern heimaleik, nánar tiltekið aðra hverja viku.

Þannig að þegar ég er búinn að vinna mína tíu tíma klukkan sex fer ég á fótbolta æfingu, fer svo í heim í bæinn og er kominn þangað svona hálf tíu og þá fer ég að skrifa inn á heimasíðu Hamars eða pistla í Naglann. Aumingja litla konan er því dottin niður í eitthvað sæti sem ekki verður gefið upp hér en hún á eftir að vinna sig upp;)

Svo birtist ég öskrandi á knattspyrnusíðum þess á milli! ...alla vega svona í bakrunni;)

--------------------------------------------------