miðvikudagur, september 20, 2006
Smá róna "qout"
![]() |
| Fulli kallinn! |
Ég sat með tölvuna á Mið-bar um daginn að horfa á fótbolta og þegar leikurinn var búinn sat ég aðeins áfram og yfirheyrði þá smá samræður. Ég er nokkuð fljótur að rita á tölvu en ég náði ekki að halda í við þá aðila sem ræddu málin þau skiptu svo oft um málefni. Við borðið sátu kona og tveir karlar:
Karl 1.: Norðmenn bíða bara eftir okkur!
Karl 2.: Já, heimskingjarnir vilja fara í ESB!
Karl 1.: Af hverju ættum við ekki að fara í Evrópusambandið?
Karl 2.: Við höfum ekkert í það að gera
Karl 1.: Treystiru þessum glæpamönnum sem stjórna landinu til að halda genginu stöðugu?
Karl 2.: Norðmenn bíða eftir Íslendingum, ef að við myndum gera svona (smellir fingrum) þá kæmu þeir líka!
Karl 1.: Það vantar bara einn norrænan Hitler.
Karl 2.: Þú talar í viðtengingarhætti... hvað er þetta?
Karl 1.: Hvað er viðtengingaháttur?
Karl 2.: Eina vitið væri að taka stafina þ-æ-ö og allt þetta drasl úr málinu!
Karl 1.: Það myndi spara tölvukerfunum okkar 500 milljónir á ári!
Karl 2.: Það á að vera löngu farið og ð-ið líka og y!
Karl 1.: Hvernig skrifar þú ufsilon?
Karl 2.:Hvernig skrifar þú það?
Karl 1.: Nei, ég er að spurja þig, hvernig skrifaru það?
Karl 2.: Ufsilon
Karl 1.: Það er vitlaust hjá þér!
Karl 2.: Nú, hvernig skrifar þú það?
Karl 1.: Ég ætla ekkert að fara leiðrétta þig... en þetta er vitlaust hjá þér
Konan: Hann man bara ekkert hvernig það er skrifað
Karl 1.: Talandi um muna, hver er grunnur orðsins "muna"?
Karl 2.: mynna, muna, mundi
Þarna tapaði ég einbeitningunni enda var rokið úr einu í annað áfram, umræðan sem fylgdi var um einfalt I og tvöfalt I og svo fór Karl 1. yfir í siglingarfræði og kenndi þeim allt um það enda var hann einstaklega fær um að skipta um umræðuefni þegar viska hans var á enda í því málefni sem í umræðunni var.
föstudagur, september 08, 2006
Myndablog
Hér eru nokkrar af þeim myndum sem ljósmyndarinn Gú og aðrir sem náð hafa myndavélinni hafa tekið síðustu vikur:


