miðvikudagur, október 25, 2006
Kúbakúba
![]() |
Castro og Che á góðum degi. |
Færri en 2% kúbverja komast á netið! Þeir sem komast á netið komast á það í gegnum ritskoðaðar tengingar þar sem fylgst er með tölvupósti og netnotkun. Það er hægt að komast á netið með því að kaupa sér password á svarta markaðinum en þá má sá hin sami eiga von á allt að fimm ára fangelsi ef hann er gripinn. Og ef einhverjum skildi detta í hug að skrifa það sem honum finnst á erlendar vefsíður þá má hann búast við allt að tuttugu árum í fangelsi komist upp um hann.
Skemmtileg lesning: http://www.rsf.org/article.php3?id_article=19335
mánudagur, október 23, 2006
Í dögun...
![]() |
| "Skutullinn býður komu hvalsins" |
Í dögun sefur spegill hafsins, kjölur býr til sár
Skutullinn býður komu hvalsins, klýfur loftið kaldur nár.
Dauðann mun hann líta, því augu hans þrá að sjá
Hvort hafið sé jafn fallegt og fjöllin jafn tignarleg, ísröndin jafn blá.
Hvað heldur þú, er nauðsynlegt að skjóta þá?
Hvað heldur þú, er nauðsynlegt að skjóta þá?
Seðlar stjórna lífinu auma hvíslar brotin rödd
Hvur trúir á drauma, trúir á draumsins heimsku rödd?
Þegar sólin kyssir fjöllin, þú sérð þá koma inn
Við síðuna liggja tröllin og í rákinni brotinn spegillinn.
Hvað heldur þú, er nauðsynlegt að skjóta þá?
Hvað heldur þú, er nauðsynlegt að skjóta þá?
Í dögun sefur spegill hafsins, kjölur býr til sár
Skutullinn býður komu hvalsins, klýfur loftið kaldur nár.
Dauðann mun hann líta, því augu hans þrá að sjá
Hvort hafið sé jafn fallegt og fjöllin jafn tignarleg, ísröndin jafn blá.
Hvað heldur þú, er nauðsynlegt að skjóta þá?
Hvað heldur þú, er nauðsynlegt að skjóta þá?
bLoGg
![]() |
| Þetta er texti undir mynd af Einstein |
Ég ætla ekki að blogga núna. Ég er að læra og þarf að skila verkefni í fyrramálið og það kemur ekki til mála að ég fari að eyða mikilvægum tíma í að skrifa um eitthvað sem ég veit ekkert um og engin nennir hvort eð er að lesa.
Lag dagsins er: Easy Like Sunday Morning með Faith No More
Tilvitnun dagsins er: "Hate the sin, love the sinner." - Mahatma Gandhi
Takk fyrir, bless!
föstudagur, október 20, 2006
Aftomivka!!!!!
![]() |
Serbneski |
Hello Bulgari,
What's up? You are not often on msn! how things going in school? Hamar?
Good wether in Serbia around 20 every day! And without wind!!! Aftomivka!!!!!
cao helvetes Islandigur!!!!!!
fimmtudagur, október 19, 2006
Nú er nóg komið...
![]() |
| Blablabla |
föstudagur, október 13, 2006
Gagnnjósnadeild Þjóðaröryggisstofu Samfylkingarinnar fundin?
![]() |
| Kiddi njósnari? |
"Þannig hafa margir spurt hver þessi dularfulli tæknimaður var, sem greint gat með vissu að sími Jóns Baldvins í utanríkisráðuneytinu væri hleraður. En liggur það ekki í augum uppi? Hvaða tæknimann hafði Jón Baldvin á sínum snærum, sem allt vissi og kunni? Nú, auðvitað sjálfan Kidda rót, sem í raun heitir Kristinn T. Haraldsson og rekur nú hið frábæra Café Kiddi Rót í Hveragerði, sem sjálfsagt er aðeins yfirvarp fyrir Gagnnjósnadeild Þjóðaröryggisstofu Samfylkingarinnar."
miðvikudagur, október 11, 2006
Newsweek
![]() |
| Humm?? |
þriðjudagur, október 10, 2006
Ylurinn að minnka?
![]() |
| Kim Jong II brenndur í Suður-Kóreu. |
Á meðan öryggisráð sameinuðuþjóðanna leggja á ráðin og þegja þunnu hljóði hefur Bush nú þegar hafið sitt stríð gegn Norður-Kóreu og segir það vegna þess að þeir styðji hryðjuverk og sem refsingu fyrir að verða Íran og Libyu út um hernaðarvarningi. Bush réðist inn í Írak af því að hann hafði ástæðu til að trúa að þeir byggju yfir "weapons of mass destruction" og samkvæmt því er það tímaspursmál hvenær hann ræðst á hinn asíska Hitler, Kim Jong II. Það gæti þó verið að erfitt verði að manna annað Kóreustríð og því mun það fara fram með langdregum flaugum milli austurs og vesturs. Hver strækar fyrst? Jah, ætli fari ekki bara kólna aftur og nýtt vopnakapphlaup sé hafið?
mánudagur, október 09, 2006
Hafið bara í huga...
![]() |
| Höfuðborg: Pyongyang |
Land dagsins: Norður-Kórea
- Full name: The Democratic People's Republic of Korea
- Population: 22.9 million (UN, 2005)
- Capital: Pyongyang
- Area: 122,762 sq km (47,399 sq miles)
- Major language: Korean
- Major religions: Mainly atheist or non-religious, traditional beliefs
- Life expectancy: 60 years (men), 66 years (women) (UN)
- Monetary unit: 1 won = 100 chon
- Main exports: Minerals and metals, cement, agricultural products
- GNI per capita: n/a
- Internet domain: .kp
- International dialling code: +850
föstudagur, október 06, 2006
Aðferðarfræði...
![]() |
| Hvað segir þetta þér? |
Lag dagsins: "See the world" af plötunni "How we operate" með hljómsveitinni Gomez
miðvikudagur, október 04, 2006
Konan farinn...
![]() |
| Kúkú! |
Hún: "ég er búin að opna réttarheimildar hugtakið"
Ég: "Ha???"
Hún: "ég er búin að opna réttarheimildar hugtakið"
Ég: (ekki alveg að skilja) jaaaá, en flott hjá þér elskan mín...
Þá fór hún aftur upp í rúm og ég klóraði mér í hausnum og elti hana og spurði hvað hún hefði sagt. Hún svaraði mér eins og ég væri heimskur fáviti: "ÉG ER BÚIN AÐ OPNA RÉTTARHEIMILDAR HUGTAKIÐ!". Ég kveikti þá á lampanum og ætlaðið að fá nánari skýringar á þessu en þá sagði frúin bara: "Ekki kveikja á lampanum ég er búin að vera sofandi svo lengi". Ég fór því bara fram og hugsaði með mér að ekki hefði hún nú þurft að lesa mikið til að svona færi.
þriðjudagur, október 03, 2006
Vísindin...
![]() |
| Farið yfir Orkuveitu málin... |













