۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

miðvikudagur, október 04, 2006

Konan farinn...

Kúkú!
Þá er komið að því sem ég bjóst við, en reyndar fyrr en ég áætlaði. Í gær sat ég inn í stofu í hægindum mínum að horfa á fyrstu seríu af "hour with Bauer" eins og kollegi minn kallar það. Konan upp í rúmi, sofandi að dreyma lögfræði. Svo kemur hún fram og segir við mig:

Hún: "ég er búin að opna réttarheimildar hugtakið"
Ég: "Ha???"
Hún: "ég er búin að opna réttarheimildar hugtakið"
Ég: (ekki alveg að skilja) jaaaá, en flott hjá þér elskan mín...

Þá fór hún aftur upp í rúm og ég klóraði mér í hausnum og elti hana og spurði hvað hún hefði sagt. Hún svaraði mér eins og ég væri heimskur fáviti: "ÉG ER BÚIN AÐ OPNA RÉTTARHEIMILDAR HUGTAKIÐ!". Ég kveikti þá á lampanum og ætlaðið að fá nánari skýringar á þessu en þá sagði frúin bara: "Ekki kveikja á lampanum ég er búin að vera sofandi svo lengi". Ég fór því bara fram og hugsaði með mér að ekki hefði hún nú þurft að lesa mikið til að svona færi.

--------------------------------------------------