۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

þriðjudagur, október 10, 2006

Ylurinn að minnka?

Kim Jong II brenndur í
Suður-Kóreu.
Bandaríkjamenn og fleiri hafa brugðist við kjarnorkutilraunum Norður-Kóreumanna með efnahags- og hernaðarrefsiaðgerðum. Hverjir verða það sem finna fyrir þeim aðgerðum? Ætli það verði ráðamennirnir sem missa kampavínin sín og kavíarinn, eða alsnauður almúgurinn sem hættir að fá í sig og á? Reyndar finna þeir líklega ekki fyrir því með afgerandi hætti á meðan kínverjar og rússar halda áfram að eiga viðskipti við þá.

Á meðan öryggisráð sameinuðuþjóðanna leggja á ráðin og þegja þunnu hljóði hefur Bush nú þegar hafið sitt stríð gegn Norður-Kóreu og segir það vegna þess að þeir styðji hryðjuverk og sem refsingu fyrir að verða Íran og Libyu út um hernaðarvarningi. Bush réðist inn í Írak af því að hann hafði ástæðu til að trúa að þeir byggju yfir "weapons of mass destruction" og samkvæmt því er það tímaspursmál hvenær hann ræðst á hinn asíska Hitler, Kim Jong II. Það gæti þó verið að erfitt verði að manna annað Kóreustríð og því mun það fara fram með langdregum flaugum milli austurs og vesturs. Hver strækar fyrst? Jah, ætli fari ekki bara kólna aftur og nýtt vopnakapphlaup sé hafið?

--------------------------------------------------