۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

þriðjudagur, nóvember 07, 2006

Listaspíran

Þetta er sannur listamaður
Ég las í gegnum nokkur gömul blöð í gær þar sem að ég hef ekki getað leyft mér það um nokkurn tíma. Og af því að ég á mér ekkert líf. Það sem ég man helst eftir úr þeim lestri er að Barbapabbi er væntanlegur aftur í búðir. Ég segi bara, kominn tími til! Fyrir þá sem ekki vita þá var mitt fyrsta orð í þessum heimi orðið Barbapabbi. Alveg satt, spurjið bara mömmu!

Því næst er ofarlega frétt um atvik sem gerðist í Listaháskólanum: ,,Þá klæddu karlkyns nemendur konu úr öllum fötum. Þeir klipptu af henni hárið og skaphár. Síðan fóru með hana nakta út í port á baklóð skólans þar sem einn bekkjarfélaginn pissaði yfir hana." Listamennirnir ætluðu sér að endurspegla firringu í vísindasamfélaginu! Er þetta list?

Ég hef ákveðið að gerast listamaður. Á morgun klukkan 9:30 ætla ég að standa í kaffistofunni í Odda, í mislitum sokkum, rífa mig úr að ofan og pissa í buxurnar. Með því ætla ég að vígja mig inn í listamannastéttina og ég á von á frábærum móttökum. Þessi gjörningur minn á að tákna uppreisn við viðmið og gildi sem mér hefur verið skylt að fara eftir til að þrífast í mannlegu samfélagi. Það er list. Það er list af því að ég er aldrei í mislitum sokkum. Það er list af því að ég hef ekki strípiþörf. Það er list af því að mig langar ekki að pissa í mig. Það er list af því að ég get það. Það er list af því að ég mun hneigja mig þegar ég er búinn að því.

Er þetta uppreisn við þau viðmið og gildi sem að mér hafa verið fyrirfram gefin til að þrífast í mannlegu samfélagi? Eða er þetta list?
----------
Vissu þið. . . .

. . . .að það eru til fleiri en 500 þekktar tegundir af fælni? Ein sjalgæfust þeirra er Hoblofóbía - hræðsla við slökkviliðsbíla!

--------------------------------------------------