mánudagur, september 26, 2005
Nýjustu fregnir herma...
...að í Noregi sé bannað að reykja á skemmtistöðum. Þar kemur fólk saman og þambar bjór í biðröðum!... annað hvort á leiðinni út að reykja, eða á leiðinni inn að ná sér í bjór. Þar sem bjór inniheldur ger, humla og önnur loftmyndandi efni hefur hann þau áhrif að fólk leysir vind í ómældu magni. Yfirleitt hefur það ekki verið vandamál, allavega ekkert sem maður hefur tekið eftir, en Þegar reykingarlyktin er ekki til staðar leggur um skemmtistaðina lykt sem á rætur sínar að rekja til gasmyndunnar í meltingarfærum þess fólks sem á staðnum er. Nú á dögunum áttu sér stað miklar umræður um bönn við reykingum á kaffihúsum og skemmtistöðum hér á landi. Í tilviki skemmtistaðanna og öldurhúsanna er ekki í vegi að spyrja sig hvort maður vilji - prumpulykt eða reykingarlykt, sérstaklega þar sem að við erum mikið bjórdrykkjufólk þegar út á lífið er komið. Þá er nauðsynlegt fyrir okkur, sem erum knattspyrnuunendur og bjóradrykkjumenn, að spyrja okkur, og hvern annan, hvort að við viljum sitja inn á sportbar fullum af karlmönnum og reykingarlykt eða karlmönnum og prumpulykt. Fyrir mig kýs ég að mæla gegn reykingarbanni á skemmtistöðum á þeim forsendum að reykingarlyktin er bara betri en endaþarmslykt sveittra karlmanna.fimmtudagur, september 22, 2005
5 staðreyndir um mig
Vegna einhvers eltingarleiks verð ég að skrifa 5 staðreyndir um sjálfan mig, sem gæti svo sem verið verra þar sem mér leiðist afar fátt sem snýr að sjálfum mér. (Þetta er bónus staðreynd)Hrokkinhærður hnokki... Já ég er með einstaklega hrokkið og fallegt hár. Oft kallaður skaphár á yngri árum vegna þykkleika þess.
Elli... er ekki orð sem á við um mig eins og gert er í kommenti færslunnar hér á undan
Menn... með krullur er venjulegt fólk eins og þið hin
Slakur... Ég er einstaklega rólegur maður á lífið og allt sem því fylgir, það er fátt sem að ég læt raska ró minni og tek hlutum með stakri ró og yfirvegun, persónu minni hefur verið líkt við hest, einstaklega gáfaður, hljóður og tryggur með eindæmum
Undantekning... Þó get ég átt það til að verða þungur þyki mér á mig hallað en það er mjöööööööög sjaldan
þriðjudagur, september 20, 2005
Evrópusamvinna

Er áfangi þar sem saga Evrópusamrunans er reifuð og vaðið í alla þá samninga og sambönd sem stofnuð hafa verið í því samhengi. Það er mun skemmtilegra en það hljómar. Til dæmis er ég í þessum rituðu að lesa um Þýskaland og þeirra hlut í Evrópusambandinu. Sagt er að Helmut Kohl þáverandi Kanslari Þýskalands hafi látið gjalmiðil Þjóðverja, Markið, gegn inngöngu þegar Maastricht sáttmálinn var undirritaður (Maastricht er annars nafn á smábæ í Póllandi þar sem sáttmálinn var undirritaður). Markið var sterkasti gjaldmiðill Evrópu og sá sem aðrir stóðu og féllu með vegna efnahagsstærðar Þýskalands. Þegar Spánverjar og Portúgalar sóttu um inngöngu voru Þjóðverjar hlyntir því öfugt við sambærilegar þjóðir, flestar þjóðir voru gegn inngöngu vegna þeirra fjármuna sem verja þurfti, og þarf enn, í landbúnaðaruppbyggingu þar, og nú eru Spánverjar á móti inngöngu Tyrkja vegna þess að þeir þurfa líka á landbúnaðaraðstoð að halda og þá minnkar þeirra skerfur. Þjóðverjar voru meira að segja, og vildu, að yfirríkjavaldið tæki yfir utanríkismál þjóðanna í Evrópusambandinu. Þetta er ekki alveg það Þýskaland sem maður þekkir í sögunni, þar sem að undirgefni er langt því frá að vera þeirra ímynd. Þessi stefna þeirra á sér þó skýringar því að stefna Þýskalands út í gegn nú á dögum beinist að framtíðinni. Þeir líta til efnahagsendurreisnar í landinu, í Berlín er t.a.m. 1 af hverjum fimm atvinnulaus. Þjóðverjar eru staðsettir í miðri Evrópu með iðnaðargeðveikina alla á sínum snærum. Það er því þeirra hagur að liðka viðskipti milli landa með sameiginlegum gjaldmiðli, óheftum viðskiptum, og opnun fyrir stóra markaði eins og Spánn og Portúgal eru. Utanríkismálin... jahh ætli þeir nenni nokkuð að spá þeim fyrr en endurreisn Þýskalands er fullkomnuð.

