۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

þriðjudagur, október 26, 2004

Auglýsingar í dagblöðum

Það er ekkert smáræði sem menn eru að borga fyrir eina blaðsíðu í dagblöðum dagsins í dag. Í Fréttablaðinu kostar t.d. opna 547.200 krónur. Það er nú bara slatti fyrir sólahrings auglýsingu. Allt auglýsingarpláss á baksíðu sama blaðs kostar 422.100 krónur og hægri síðurnar í blaðinu kosta þetta:

Síða 3 - 428.600
Síða 5 - 415.000
Síða 7 - 399.000
Síða 9 - 387.200
Síða 11 - 376.200



Þessar tölur plús allt annað, þetta eru bara hæstu tölurnar og fara vel á þriðju millu samanlagt. Við erum að tala um hvern einasta dag vikunnar! Bara þessar tölur sem eru hér sinnum sjö er sautján og hálf milljón á viku og því sjötíu milljónir á mánuði. Tala nú ekki um ef að það er kannski fyrirtæki með fjórar síður, eins og Hagkaup er með í hverri viku nánast, þá er komin auka milljón og ein komma sex ef að það eru tólf blaðsíður. DV er reyndar mun lægri enda ekki eins margir lesendur. Held að Mogginn sé á svipuðu róli og Fréttablaðið. Ég komst þó ekki yfir upplýsingar frá þeim en ég fór í kynningu hjá þeim í framhaldsskóla og spurði þá kynningarstjórann að því hvað síða þrjú kostaði hjá þeim þ.e. dýrasta síðan. Það var tala sem var í kringum hálfa milljón þó ég muni ekki nákvæmlega hver hún var. Ekki nóg með það þá eru þessar síður pantaðar að staðaldri hálft ár fram í tíman og meira. Þeir eru reyndar að ná til nokkuð margra en mér þykir það stutt og lítils virði því fólk lítur á þetta og þær ná ekki einu sinni að fara inn og út hinum megin, svo langt ná þær ekki(ekki nema að það sé létt klæddur kvennmaður).

Auglýsing á eina síðu, í einn sólahring sem flestir varla líta á og henda áður en deginum líkur, kosta jafn mikið og ég þéna á einu sumri. Fyrir hálfa milljón myndi ég banka uppá hveju einasta húsi á Íslandi klæddur í Hagkaupsbæklingin og hafa gaman af því, og hvort ætli sé nú betri auglýsing?

sunnudagur, október 24, 2004

Kommúnista leiðtogi fellur!

Höfðingi Havana og vindla féll í vikunni eftir að hafa haldið ræðu á útskriftarhátíð. Já hann féll bókstaflega þessi 78 ára kommúnista einvaldur sem hefur verið við völd í Kúbu í 45 ár. Hann var að ganga niður af sviðinu sem hann hélt ræðuna á og datt í neðstu tröppu, lenti á hné, olnboga og mjöðm. Hann hvorki meira né minna braut hnéskel og brákaði upphandlegg og því greinilega orðinn frekar brothættur kallinn. Hann segist þó ætla að halda ótrauður áfram jafnvel þótt hann verði settur í gifs. Fjölmiðlar velta því nú en meira fyrir sér núna hvort heilsa hans sé að bresta þar sem hann féll í yfirlið fyrir þremur árum við ræðuhöld. Einnig spyrja menn sig þá hvað gerist eftir Castro? Sumir segja að algjört svartnætti muni ríkja og sólin hætti að skína en aðrir segja kominn tíma og vilja framþróun.

Spurning hvort margra ára óhóflegar vindlareykingar séu að stíga leiðtoga Kúbu til höfuðs?


Yoko skaut lennon

Rakst á síðu áðan þar sem að birt eru textabrot frá þekktum listamönnum og hljómsveitum áfram og afturábak. Þar er einnig er hægt að hlusta á brotin. Margt áhugavert kemur greinilega fram í textum afturábak eins og t.d. í texta Britney Spears "Hit me babe" segir hún á einum stað "i´m not to young, sleep with me". Ég vissi alltaf að Britney væri mikill hugsuður en ég vissi ekki að hún væri svona rosalega klár. Freddy Mercury syngur "i´ts fun to smoke mariujana" í "Another one bites the dust" og Led Zeppilin er með bæn til satans í "Stairway to heaven". Veit ekki hvort maður á að kaupa þetta, hversu klár þarf maður að vera til að geta samið texta aftuábak án þess að hann sé bull áfram. Annars er þarna t.d. brot úr texta Pink Floyd sem að fær mann til að hugsa og trúa því að þeir hafi gert þetta meðvitað því textinn er svona "Congratulations. you have just discovered the secret message. Please send your answer to old pink care of the funny farm, Calfont." Og þetta er eins og þetta sagt áfram. Einnig eru Eminem, Lennon og Bítlarnir með klippu þarna. Yoko Ono segir í lagi sínu Kiss kiss kiss "i shot Lennon" og ég skil bara ekki afhverju ekki er búið að handtaka hana. Ég leyfi mér þó að efast um að menn geri þetta meðvitað, þetta er bara uppgötvanir einhverra manna sem hafa gjörsamlega ekkert annað að gera en að hlusta á tónlist allan daginn aftuábak. Þið getið þó dæmt um það sjálf kíkið á þetta......Hér

mánudagur, október 18, 2004

Stend við mín orð!

Já, þá er þetta á hreinu. Það er í lagi að skrifa um það núna þar sem að frúin er í loftinu og getur ekki farið á netið og nær ekki að sjá þetta áður en hún fær fréttirnar. En eins og ég sagði fyrir ungfrú suðurland við hana, ef hún ekki ynni myndi ég hætta með henni. Hún vann þar þrjá titla, vinsælust, annað sætið og eitthvað, og fékk þátttökurétt í ungfrú Ísland. Með það að leiðarljósi gaf ég henni séns. Ef hún ekki ynni ungfrú Ísland væri þetta búið. Hún vann ekki en varð í þriðja sæti. Hún grátbað mig og í ljósi þess að hún fékk þátttöku rétt í þriðju keppninni, miss International gaf ég henni síðasta sénsinn. Þrátt fyrir að ég hafi ekki verið sammála úrslitum síðustu keppni, frekar en þeim öllum, þá er ég maður minna orða og er því á leiðinni í Keflavík að ná í fyrrverandi konu mína. Hún veit það reyndar ekki ennþá en hún fær fréttirnar á eftir og má búast við því að hún maldi eitthvað í móinn. Ég get ekkert sagt annað en að ég hafi bara ákveðinn standard og sé ekki tilbúin að vera með þriðju fallegustu konu landsins, hvað þá vinsælustu eða eitthvað svoleiðis krap. Alla vega verð ég að lifa eftir því sem ég segi og svoleiðis er þetta bara.

laugardagur, október 16, 2004

Hvað er að???

Já ég leyfi mér að efast um réttlæti þessarar keppni sem konan mín tók þátt í. Það þekkja allir hana Dóru, hún fór alla leið til Japans og svo til Kína, til þess eins að láta svindla á sér. Til upprifjunnar þá er þetta hún og ég ætla að leyfa fólki að dæma svo sjálft hver þessara kvenna er fallegust(látið ekki ummæli mín hafa áhrif, ég er hlutdrægur).............



Þessi varð í þriðja sæti og er frá Grikklandi...............



Og þessar tvær myndir eru af öðru sætinu, ég meina common Dóra rústar þessari píu...........



Plús það þá er hún mikil ljóskam að sögn miss Bjarnadóttur............



Og svo síðast og ALLRA síst Miss Ugly National 2004...............



Hér er hún ásamt vinkonu sinni.................



Þessar þrjár í pakkatilboði..................................



Eða drottningin á efstu myndinni???....................ekki spurning.


föstudagur, október 15, 2004

Concert á Gauknum


Fór á tónleika í gær með cover hljómsveitinni Dúndurfréttum á Gauknum. Ekki í fyrsta skipti..........kannski nær áttugasta og níunda. Fyrir þau ykkar sem ekki þekkið Dúndurfréttir þá eru þið eymingjar en þeir eru coverband sem spilar Pink Floyd, Led Zeppilin og Deep Purple og mæli ég endregið með þeim. Þeir voru þó ekki nógu góðir í gærkveldi að mínu mati, þ.e. á þeirra mæli kvarða, þeir eru náttúrulega alltaf góðir en bara mis. Kannski er ég bara búin að sjá þá of oft en allavega voru þeir allt of rólegir og hreinlega ekki í stuði. En kvölið var ágætt og Þrátt slappleika kastaði Jesús Pétur nokkrum góðum fram í salinn eins og honum einum er lagið..........................

miðvikudagur, október 13, 2004

Miss International á Laugardaginn

Það styttist óðum í kepppnina hjá frúnni og fylgist ég spenntur með. Þær príluðu á Kínamúrnum í gær og svo eru þrotlausar æfingar í gangi, já það þarf að æfa sig í því að vera fallegur. Ég hef nú persónulega aldrei gert neinar æfingar samt lít ég svona líka glimrandi vel út. Ungfrú Brazilía er víst mikið í því að sýna skinn þarna úti að sögn miss Bjarnadóttir og ætlar hún greinilega að reyna vinna á því(he*#$%*$ túttan) og hún fær víst líka athygli útá það. Menn sem hafa séð Dóru geta nú alveg séð hvor er flottari.......


Já og þið sjáið að hún fer líka létt með þessar litlu stelpur.....


Og þessa.......


Svo að lokum sjáum við "Miss Bjarnadóttur" að æfa sig í að vera falleg........... Ekki það að hún þurfi einhverja æfingu frekar en ég.......


mánudagur, október 11, 2004

Helgin

Frekar slöpp helgi að baki, það sem stóð uppúr var án efa Ómar Ragnarsson sem að var veislustjóri á villibráðaveislu sem ég fór í á Hótel Örk. Hann er á sjötugsaldri en hljóp um og gargaði eins og vetlisingur í þrjá tíma, bjóst ekki við því að ég hefði svona gaman af honum. Ég spilaði í tvo tíma á Nelly´s á föstudagskvöld(fín stemmning) og Snúlla á Laugardagskvöld(Dræm). Ekkert búin að læra alla helgina og því verður því farið í ræktun í vikunni, bæði á líkama og vitsmunum. Vika í frúnna og aðeins fimm dagar í að hún verði valin Miss International.

föstudagur, október 08, 2004

Frúin flogin yfir

Já eins og flestir vita er frú mín búin að vera í Japan um tíma eða nánar tiltekið 12 daga. Hún flaug í gær yfir til Kína þar sem aðalkeppnin er. Keppnin er þann 16. og eftir það er bara heimsfrægð.


--------------------------------------------------