mánudagur, febrúar 21, 2005
Jón Jónsson fær sér jónu
Einn góðan laugardag ekki fyrir svo löngu fór ég út í einn öl ásamt félaga mínum. Við fórum inn á frekar vafasaman bar að nafni Mónakó, þar sem fjárhættuspil í formi spilakassa er stundað grimmt. Ég lenti á spjalli við mann, líklega á fertugs aldri, sem sat á barnum. Þar sem að ég er of nískur til að setja pening í kassa spjallaði ég við hann meðan félagi minn spilaði póker. Það kom til tals að ég væri í stjórnmálafræði og þá fór hann, eins og svo oft áður þegar fólk eldra en ég kemst að því, að sannfæra mig um að hann væri sko enginn aukvisi í þeim málum. Eftir drykklanga stund spyr hann mig svo hvort að mér sé ekki sama þótt hann kveiki sér í jónu! Ég hló aðeins og sagði síðan; ,,jújú fyrir mér". Ég hélt að honum væri ekki alvara en sá svo að annað var uppá teningnum þegar hann byrjaði að mylja úr sígarettu Á BARBORÐIÐ! Ég hálf fibaðist (ef það er orð) og starði á hann þar sem hann tók svo upp mola úr vasanum og setti saman við. Hann hélt bara áfram að blaðra en ég stóð þarna alveg frosinn. Hann tók síðan pappír uppúr vasanum og saug draslið upp í samanvafin pappírinn og kveikti í. Hann hélt áfram að blaðra þangað til ég sagðist þurfa fara að tala við vin minn eða eitthvað asnalegt til að forða mér. Fyrsta skipti sem ég sé eiturlyf svo frjálslega meðhöndluð á opinberum stað en kannski er þetta standardinn á þessum annars vafasama stað þar sem fjárhættuspil og eiturlyf eru meðhöndluð eins og hvað annað.fimmtudagur, febrúar 17, 2005
Brandarinn..
...hans Stebba var nokkuð góður. Hann var skemmtanastjóri á árshátíð stjórnmálafræðinema þar sem voru margir kennarar og þar á meðal Hannes Hólmsteinn. Stebbi byrjaði á því að segja að þetta væri jómfrúarveislan sín sem veislustjóri og að hann hafi verið tregur til fyrst þar sem hann væri frekar ófyndinn maður og segði bara klámbrandara (sem hann sagði svo mikið af um kvöldið). En hann sagði svo: ,,eftir að ég ákvað að taka þetta verkefni að mér fór ég að safna bröndurum og fékk þá hjá ýmsum góðum mönnum en ég ætla ekki að fara nefna nein nöfn hér, ekki frekar en Hannes gerði í bókinni sinni"! Ha ha ha ha he he he he, salurinn trylltist, Hannes rétt glotti.Computer breakdown!
Já það kemur yfirleitt ekki í ljós hvers maður þarfnast mest fyrr en maður missir það. Það er nú bara þannig að ef að síminn verður batterís laus þá hefur maður aldrei haft meiri þörf fyrir hann, tala nú ekki um ef að maður týnir honum, maður verður gjörsamlega lamaður, vinalaus og aðgerðarlaus. Þó færist um leið yfir mikið ró og næði. Hvað varð um að kíkja í heimsókn eitthvert án fyrirvara? Það er ekki gert í dag án þess að hringja á undan sér. Það hentar mér reyndar ágætlega því þá hef ég tíma til að fara í föt og henda rusli undir rúm og svona. En nú gerðist það að tölvan mín hrundi á þriðjudaginn, líklega vegna vírus sem ég hef náð mér í gegnum niðurhal á tónlist. En hvað gerir maður í háskóla tölvulaus, ég þarf að skila tölvuunnu verkefni á þriðjudag og ritgerð eftir tíu daga. Ég þarf líklega að gera það þá í tölvustofum háskólans, great. En það er bara þannig ef maður missir eitthvað af þessum tækjum sem að maður er orðin gjörsamlega háður þá verður algjört comunucation breakdown. Þetta væri í lagi ef að ég hefði heimatölvu en það hef ég ekki þannig að nú þarf ég bara bíða eftir að tölvan komi úr viðgerð sem tekur pottþétt meira en tíu daga og kostar pottþétt meira en tíu þúsund, urr!mánudagur, febrúar 14, 2005
Föstudagurinn...
...var góður þar sem að aldrei neinu öðru vant fékk ég að hafa bílinn. Það telst til tíðinda þar sem ég hef ekki fyrsta rétt á honum. Ég og Diego fórum í fjórar byggingar skrifstofuveldisins og duttum svo inná sportbar, keyptum okkur fötu og spiluðum pool. Það verður ekki haft eftir hér hvernig sú keppni fór. Ég fór svo á árshátíð Stjórnmálafræðinema þar sem Stefán Hilmars var skemmtanastjóri. Hann sagði góðan brandara á kosnað Hannesar Hólmsteins, sem var orðinn vel kenndur ásamt öðrum kennurum. Ég þambaði líter af rauðvíni, hló dátt og tók fyrstu rútu heim. Þar var gítarglamrari. Ég reif af honum gítarinn söng sex sjö lög og skilaði gítarnum. Gat ekki einu sinni þakkað fyrir lánið þar sem ég missti röddina inní gítarinn. Fór heim með rauðvínslitaðar tennur, þykkar rauðar flögur á vörunum nokkuð vel íðí. Vaknaði klukkan tíu og hélt morgunverðarboð fyrir þrjá. Ég og hin alræmdi Diego brunuðum svo í Hveragerði og partisiteruðum í firmamóti Hamars. Áttum að vinna. Unnum liðið sem vann 3-1 í riðla keppni. Helvítis riðla fyrirkomulag. Kom heim keyrði fólk á flugvöllinn klukkan sex aðfaranótt sunnudags bla bla bla. Matarboð á sunnudaginn bla bla bla, Fondú, pictionari og bla bla bla.fimmtudagur, febrúar 03, 2005
Manneskja ársins 2004
Að mínu mati er það engin spurning að það er Halldóra Rut Bjarnadóttir. Ég gæti hugsanlega verið litaður í þessu mati en ég ætla samt að koma með þær staðreyndir sem fá mig til að halda þessu fram og þeir eru eftirfarandi:
--> Tók þátt í uppsetningu leikfélags Fsu á leikritinu “Hey þú”, sem byggt er á lögum Skítamórals eftir Felix Bergsson og fór á kostum, stal að flestra mati senunni og þótti sýna mikla leikræna tilburði.
--> Tók þátt í fegurðarsaðmkeppni Suðurlands og fékk þrjá titla: 1-lenti í öðru sæti, 2-valin Sportbæjarstúlkan og 3-vinsælasta stúlkan, sigurvegari keppninnar að flestra mati.
--> Valin Sunnlendingur vikunnar eftir keppnina en ekki sú sem vann keppnina!
--> Útskrifaðist með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Suðurlands með fyrstu einkunn.
--> Tók þátt í ungrú Ísland, lenti í þriðja sæti, átti að vinna að flestra mati er búin að vera einna mest áberandi eftir keppni.
--> Var Fjallkona Hveragerðisbæjar og var einkar glæsileg.
--> Ferðaðist til Japans og Kína og tók þar þátt í Miss International, hafði aldrei áður farið út fyrir landsteinana. Ekki einu sinni til Eyja!!!
--> Fékk ekki frið firir miðlum landsins og kom þrisvar í Séð og Heyrt, óteljandi oft í Glugganum, Dagskránni og Sunnlennska. Kom í Dv og var oft í Hagkaupslistanum góða, sem þýðir reyndar að hún er í rúnkminni allmargra karlmanna á landinu:/
--> Gaf sér loks tíma, í miðjum hasarnum, til að fara í 6 vikna enduhæfingu á Reykjalund vegna bílslyss sem hún lenti í á yngri árum.
--> Var boðið í vinnu við dagskrágerð á Popp Tíví. Þar mun hún verða með dægurmála sjónvarpsþátt sem verður á dagskrá alla virka daga, meðstjórnandi hennar verður Sverrir Bergman. Hún mun einnig vinna að markaðsmálum og við heimasíðu þeirra.
--> Ef þetta er ekki glæsilegur árangur þá veit ég ekki hvað. Svo er bara sjá hvað hún gerir á árinu 2005.
þriðjudagur, febrúar 01, 2005
Geðsýki
Ég les yfir mig á þessu annars ágæta vormisseri. Eða fell. Það ekkert annað í stöðunni. Minn hrokkinhærði kollur, þó hann sé stór og myndarlegur, rúmar ekki svona mikið af kjaftæði á svo stuttum tíma! Ef hið fyrra verður staðreynd ætla ég að fara á Dvalarheimilið Ás í Hveragerði og hafa það gott. Það verður fínt. Labba niðrí Shell á hverjum degi og kaupi mér bingókúlur fyrir hundrað og þrjár, tvo lítra af Grape og fá mér frítt í nefið. Svo fer ég heim á hæli og horfi á vegg það sem eftir er dagsins. Það getur ekki verið svo slæmt. Ef ég fell fer ég á Hlemm.

