laugardagur, desember 25, 2004
Þann 24. Desember...
--> Kemur Kertasníkir til byggða
--> Árið 1524 Dó Portúgalski landkönnuðurinn Vasco Da Gama ----->
--> Árið 1724 Kom Benjamin Franklin til London
--> Árið 1865 var Ku Klux Klan stofnað
--> Árið 1906 varð Reginald A. Fessenden fyrstur til að senda út tónlist í gegnum útvarp í Massachusetts
--> Árið 1929 Fæddist rithöfundurinn Mary Higgins Clark í New York
--> Árið 1966 Lenti "Luna 13" á tunglinu
--> Árið 1971 Fæddist Stórstjarnan Ricky Martin
--> Árið 1974 Fæddist Fótboltahetjan Marcelo Salas
--> Árið 1979 Réðust Sovétríkin inn í Afganistan til að styðja marxista stjórn þeirra
--> Árið 1990 Gaf Saddam út að Ísrael yrði fyrsta skotmark Íraq
--> Árið 1991 Sagði Mikhail Gorbachev af sér sem forseti Sovétríkjanna
--> Árið 1994 Rændu 4 Íslamskir hryðjuverkamenn Franskri farþega flugvél, þrír óbreittir voru teknir af lífi en svo einnig hryðjuverkamennirnir
--> Þarf jólassveinninn, samkvæmt könnun sem gerð var árið 1999 byggð á fólksfjölda í Norður Ameríku og Evrópu, að heimsækja 42,466,666 heimili á 12 tímum. Það samsvarar 983 heimilum á sekúndu.
--> Árið 1524 Dó Portúgalski landkönnuðurinn Vasco Da Gama ----->
--> Árið 1724 Kom Benjamin Franklin til London
--> Árið 1865 var Ku Klux Klan stofnað
--> Árið 1906 varð Reginald A. Fessenden fyrstur til að senda út tónlist í gegnum útvarp í Massachusetts
--> Árið 1929 Fæddist rithöfundurinn Mary Higgins Clark í New York
--> Árið 1966 Lenti "Luna 13" á tunglinu
--> Árið 1971 Fæddist Stórstjarnan Ricky Martin
--> Árið 1974 Fæddist Fótboltahetjan Marcelo Salas
--> Árið 1979 Réðust Sovétríkin inn í Afganistan til að styðja marxista stjórn þeirra
--> Árið 1990 Gaf Saddam út að Ísrael yrði fyrsta skotmark Íraq
--> Árið 1991 Sagði Mikhail Gorbachev af sér sem forseti Sovétríkjanna
--> Árið 1994 Rændu 4 Íslamskir hryðjuverkamenn Franskri farþega flugvél, þrír óbreittir voru teknir af lífi en svo einnig hryðjuverkamennirnir
--> Þarf jólassveinninn, samkvæmt könnun sem gerð var árið 1999 byggð á fólksfjölda í Norður Ameríku og Evrópu, að heimsækja 42,466,666 heimili á 12 tímum. Það samsvarar 983 heimilum á sekúndu.
fimmtudagur, desember 23, 2004
Jólagleðin...
Hefur tekið völdin á ný eftir vel heppnaða verzlunarferð. Já þetta blessaða jólastress var nú ekki lengi að hrjá þann sauðslaka. Ég fór í bæinn í dag og gerði öll mín helztu kaup á nó tæm. Þetta er bara spurning um að vera skipulagður og spila þetta kerfisbundið. Allavega gef ég ekki mikið fyrir þetta jólastress, ég þurfti að kaupa slatta mikið af gjöfum og gerði það á nokkrum klukkutímum og hékk svo bara á kaffihúsum þess á milli og fór mestur tími í það. Svoleiðis vildi ég hafa þetta og á morgun þarf ég bara að kaupa tvær gjafir og svo verður bara sötrað kaffi, gengið niður Laugarveginn og haft það hyggeligt. Ég læt hér fylgja mynd af mér og Dóru í gærkvöldi þegar ég vara að máta búninginn, smellið bara á hana þá sjáiði hvað var gaman.
þriðjudagur, desember 21, 2004
Jólastress...
Er lumma sem ég er orðinn svolítið þreyttur á. Hverjir eru þetta sem eru svona stressaðir? Ég veit það ekki, alla vega ekki ég. Ég er til dæmis ekki búinn að kaupa nema eina jólagjöf af fimmtán eða eitthvað, þar sem ég á aragrúa af syztkinum, en er bara ekkert stressaður. En ég verða að játa að allt þetta tal um að allir séu stressaðir er farið að stressa mig upp. Nú er t.d. einhver prestur að tala um stress jólanna í Ízland í dag og talar um að allir verði að klára hitt og þetta og njóta svo jólanna. Hvað er þetta! ég var að njóta lífsins til hins ítrasta og ætlaði ekki að kaupa neinar gjafir fyrr en á þorláksmessu, í jólaskapi. Núna er ég orðin dauðhræddur um að ég nái ekki að kaupa allar gjafirnar útaf þessu endalausa stress tali. Sé fram á að ég eigi ekki eftir að vera í jólakapi við innkaupin heldur jólastressgeðveikiskasti. Nú er ég líka búinn að leggja mitt að mörkum í umræðu jólastressins og hef vonandi náð að stressa einhvern sauðslakan kæruleysingja, eins og ég var, upp. Gleðileg jól.
sunnudagur, desember 19, 2004
Guð minn almáttugur!
Ég held virkilega að hún haldi að hún sé sexý!!! Dæmi hver fyrir sig, en á svipnum að dæma gæti maður allavega haldið það. Ég veit það ekki, kannski á maður ekki að vera að dæma, örugglega ágætis stelpa en heimasíðan hennar er líka frekar shallow. En það er bara mín skoðun.
laugardagur, desember 18, 2004
Föstudagurinn
07:30--> Helt uppá
07:45--> Læra
13:30--> Próf
17:46--> Gekk út úr prófi
17:47--> Öskraði af gleði inní bíl
17:48--> Áfengis og tóbakverslun ríkisins
18:01--> Keypti útskriptargjöf
19:27--> Sturtaði mig
19:59--> Útkriftarveisla hjá Valgý Siz
20:23--> Bjór
21:01--> Brunaði í bæinn
21:46--> Arrived @ Diego´s, þar voru ásamt honum: Doddi, Addi og Guðni
23:33--> Sjötti bjór
23:49--> Fyrsti skipstjórinn
00:34--> Kjallaraíbúð á Ránargörunni
Tímaröð ruglast--> Skemmtistaðir Reykjavíkur
04:34--> Uppí rúmmi
föstudagur, desember 17, 2004
Próflok
Já, loksins loksins. Ég er búin að vera læra 24/7 núna í tæpar þrjár vikur. Þá meina ég að bókstaflega er ég ekki búin að sjá sjónvarp, fótbolta, Dóru, Geira litla né heldur bjór og hvað þá aðra munaðarvöru allan þennan tíma. Eina sem ég er búinn að sjá eru kenningar um strúktúra, ártöl, norm, alþingi, mannanöfn, ríkisstjórnir, hagfræði, fullveldi, alþjóðastjórnmál og Daða. Já...Daða. Við félagarnir höfum nefninlega mætt saman uppí Odda alla morgna klukkan sjö, +/- tveir;) og lært eins og geðsjúklingar. Þar erum við búnir að sitja að meðaltali 15 tíma á dag og þambað mikið kaff, étið júmbó og innbyrt mikið af fróðleik. Á tímabili vorum við báðir að missa geðheislu en drógum hvorn annað upp úr heimi sturlunar til skiptis. Ég var að átta mig núna eftir að ég kom úr síðasta prófinu að það er komin 17. dez! vika til jóla! og ég er ekki búin að kaupa eina einustu jólagjöf og hvað þá farinn að spá í þeim. Það er seinni tíma vandamál, núna verður farið og slett úr þeim.
miðvikudagur, desember 15, 2004
Ég þjáist af...
Magasári og kvíða
af próflestri og svefnleysi.
illa lyktandi farið að svíða
undan óþverra og skegg...crazy, lazy, Patrick Swayze.
Tvö niður, tvö til að fara (e. two down, two to go)
gaman verður eftir það bara. (e. comon now let it flow)
þegar þau loksins klárast
mun ég örugglega tárast.
Á föstudag verða þau búin
og slitið verður skólum.
Ánægð verður þá frúin
og r*** mun fram að jólum;)
Nei bara varð að líta aðeins úppúr hagfræðinni.....
Greedings, Homo economicus :/
laugardagur, desember 11, 2004
Vissu þið að...
--> Ég er búin í einu prófi af fjórum?
--> Kýr hafa fjóra maga?
--> Allir píramídar VORU skjannahvítir?
--> Algengasti litur bíla sem lenda í árekstri er rauður?
--> Ég er að fara í þrjú próf í vikunni...
--> ...Og skila verkefni?
--> Á ættaróðali mínu eru sjö hvolpar, einn fyrir þig?
--> Adam Smith er faðir hagfræðinnar?
--> Félagsfræðingum fannst hagfræðingar eigna sér hann um of?
--> Sjaldan vaknar sá á réttum tíma sem sefur yfir sig?
--> "Love me tender" er málfræðilegar vitlaust, "love me tenderly" er rétt?
--> Stefán Hilmarsson er ókrýndur glósukóngur í H.Í.?
--> Marilyn Monroe var með sex tær á annari löppinni?
--> Ég er um það bil að lesa yfir mig?
--> Á 7. áratugnum lentu Ecuador og Honduras í stríði útaf fótboltaleik?
--> Á ættaróðali mínu er köttur sem heldur að hann sé hundur?
--> Á nafnspjaldi Al Capine stóð að hann væri "used furniture dealer"
--> prófin eru á mánudag, miðvikudag og föstudag?
--> Þau eru samtals tólf klukkutímar á fimm dögum?
--> Hedley Bull og John Burton voru ekki sammála um alþjóðakerfið?
--> Þetta stóð á síðu sem ég rakst á: ,,There is no ice covering Iceland"
--> Michael Jordan fær/fékk meira í auglýsingartekjur á ári hjá Nike en allir verkamenn allra Nike verksmiðjanna í Malasíu?
þriðjudagur, desember 07, 2004
Tilvitnun dagsins...
Ég vildi að ég væri svona sjarmerandi...
--->"He's the kind of a guy who lights up a room just by flicking a switch." Því miður er ekki vitað hvaða snillingur mælti þessi fleygu orð.
mánudagur, desember 06, 2004
Hvað gera stjórnmálafræðingar?
Þetta er sú spurning sem að ég hef verið spurður oftast að síðan ég ákvað að fara í stjórnmálafræði. Ég styðst hér við svar á heimasíðu Politicu þar sem segir að stjórnmálafræðingar vinni meðal annars...
---> Við kennslu og rannsóknir
---> Við fjölmiðla og upplýsingastörf
---> Við alþjóðasamskipti í utanríkisþjónustunni
---> Hjá ráðgjafafyrirtækum
---> Hjá alþjóðastofnunum og fyrirtækjum
---> Hjá sendiráðum og hjá einkareknum fyrirtækjum
---> Í ýmsum ráðuneytum
Ég fann þessa lýsingu um stjórnmálafræði á vef "North Dakota State University" sem segir allt sem segja þarf um nám í þessum fræðum:
One out of five persons in the United States today is employed by some level of government. This expansion of government has created a vital need for thoughtful, active people who are professionally trained in government and in political science.

