۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

þriðjudagur, apríl 25, 2006

Aldrei fór ég norður!

Sagði Bubbi Morteins ekki en það hefði átt vel við núna. Það hefur nefninlega komið á daginn að ég mun ekki flytja norður að bakka Dónár vegna þess að ég náði aldrei flugsundinu nægilega vel. Eftir gaumgæfilega skoðun á sundskírteininu mínu kom í ljós að ég var með lágmarkseinkun fyrir flugsund á grunnskólastigi og því ekki hæfur til að búa við Dóná í núverandi ástandi. Ég mun hins vegar flytja til Blagoevgrad sem er tæplega 80.000 manna borg um 100 km suður af Sofiu. Þetta á sér þær skýringar að vegna annatíma í Sofiu er erfitt að fá ódýra gistingu þar í svo langan tíma og því var farið þá leið að finna nýjan stað fyrir mig. Ég átti að fara til Vidin við Dóná en endanlegur ákvarðanastaður er Blagoevgrad.

Mér er sagt að þetta sé gríðarlega falleg borg og efnahags og menningarmiðja suð-vestur Búlgaríu. Hún er staðsett í dal Struma árinnar við rætur Pirin og Rila fjallanna, nálægt landamærum Grikklands og Makedóníu. Ég mun ferðast með rútu til Sofiu klukkan tvö á morgun, föstudag. Þar mun ég hitta Milenu sem er tengiliður minn hérna úti. Frá Sofiu fer ég svo suður til Blagoevgrad þar sem bíður mín studíóíbúð.

--------------------------------------------------