sunnudagur, apríl 23, 2006
Hristos vaskrese!
Páskarnir í ár eru aðeins í seinna lagi hér í Búlgaríu þar sem að hér er rétttrúuð kristni, þó yfirleitt séu þeir á undan okkur. Í gærkvöld á miðnætti safnaðist fólk saman í kirkjunni og kveikti á kertum fyrir hvern meðlim fjölskyldunar. Svo var gengið í kringum kirkjuna með kerti og hlustað á prestinn kyrja sálma og segja hristos vaskrese, sem þýðir í nafni krists held ég. Það var þó svolítið undarlegt að ansi margir voru aðeins í glasi. Ekki nóg með það þá var presturinn VEL hífaður. Hann var inni að kyrja sálmana sína sem var svo sent út í gengum hátalara. Kallinn byrjaði allt í einu að tala við einhvern milli þess sem hann sönglaði eitthvað. Í eitt skipti sagði hann: nei, nei ekki herða þetta svona mikið ætlaru að drepa mig, og svo sagði hann bara hristos vaskrese. Þetta gekk svona áfram, hann var aftur að babbla eitthvað og sagði svo bara hristos vaskrese. Fólk var farið hlæja í hvert skitpi sem hann sagði eitthvað en hann er víst þekktur fyrir drykkju sína hér í bæ. Ein vinkona mín sagði mér að hann væri alltaf fullur og hefði beðið sig um að fá að sjá um brúðkaupið hennar. En það er bara ein ástæða fyrir því að hann er ólmur í brúðkaup, vegna þess að þá fær hann frítt að drekka.
Í kvöld verður svo farið í eggjakast sem verður án efa mjög áhugavert.
Gleðilega Páska

