۩ Díalektík Djöfulsins ۩

. . . . .


Hitastig í RVK
Click for Reykjavik, Iceland Forecast

Díalektík Djöfulsins <$BlogRSDURL$>

۩Tenglar۩


۩Myndir۩


۩Skrif۩


۩Blogg۩


۩Nýlegt۩

۩Eldra۩

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

sunnudagur, maí 21, 2006

Vörubílstjórabrúnka

Bíllinn minn blái
Ég lagði af stað á bílaleigubílnum, sem er af gerðinni Opel Corsa, frá Sofia í gærmorgun. Það gekk svona þokkalega að keyra í Sofiu en ég þurfi samt að taka nokkra auka hringi í miðbænum til að finna leiðina út. Bílstjórarnir hérna eru vægast sagt nett taugaveiklaðir og farnir að flauta þegar nokkrar sekúndur eru í að það komi grænt. Ég var því búinn að setja mér það markmið að láta ekki flauta á mig. Það gekk ekki alveg eftir og ég taldi fjögur flaut á þeim tíma sem ég var að keyra í Sofiu, akkurat út af engu.

Svo þegar ég var kominn út á þjóðveg þá gleymdi ég mér eitt skiptið á vinstri akreininni og var eitthvað að dóla mér þar á 100 kílómetra hraða þegar ég sé að það er svartur Audi fyrir aftan mig að blikka ljósunum á fullu. Ég renndi mér þá yfir á hægri og Audi fór fram úr mér og fór fyrir framan mig og hægði á sér niður í 60 km hraða. Hann var sem sagt að hefna sín en ég hló bara, fannst þetta frekar sniðugt og var ekkert að flýta mér. Hann brunaði svo í burtu þegar hann sá mig hlæja, held ég, eitthvað aðeins pirraður á túristanum, hehe.

Ég stoppaði nokkrum sinnum á leiðinni og tók myndir og fékk mér kaffi og svona og fór nokkrum sinnum út af þjóðveginum og keyrði um krummaskuð og skoðaði sveitabæi. Ég keyrði náttúrulega með opinn gluggan því það var alveg svakalega gott veður og með vinstri hendina í glugganum, svona eins og töffari skiljiði. Ég er því núna með eina mjög brúna hendi og aðra hvíta eða eins og ég kýs að kalla það vörubílstjórabrúnku. Ég verða að fá mér hlírabol áður en ég legg af stað á morgun svo ég fái líka smá lit á vinstri öxlina;)

Þegar ég kom til Sevlievo var tekið á móti mér eins og heimamanni og ég tjékkaði mig inn á hótelið en fór svo út í skoðunarferð. Ég hafði alltaf ætlaði mér að skoða gamla bæinn hérna sem er lengst upp í fjalli og það gerði ég í gær í steikjandi sól og um 30 stiga hita. Það var rosalega gaman að sjá þetta þó að ég hafi reyndar verið meira upptekin af því að horfa í jörðina heldur en á mannvirkin. Það var vegna þess að það var mikið um hátt gras og skógur sem ég þurfti að labba í gegnum og því mjög mikið af eðlum og snákum út um allt. Ég var skíthræddur og var eitthvað svo berskjaldaður í kvartbuxum og hálfgerðum sandölum en ég er viss um að það hefði verið gaman að vera fluga á vegg að fylgjast með æfingunum hjá mér þegar ég stökk til og frá við minnsta hjóð.

Í gærkvöldi hitti ég svo félaganna hér og vaknaði klukkan hálf tíu í morgun fór á netið og svo í sólina. Var að átta mig á því að ég er ekkert orðinn brúnn, nema á vinstri hendi, og það eru bara fjórir dagar eftir.

--------------------------------------------------